Logo samkeppni

Nú er kominn tími til að vera merkileg!

Samtök áhugafólks um útinám, (www.utinam.is) efna til samkeppni um gerð að merki (lógói).

“Samtökin eru félagskapur fólks sem hefur áhuga á útinámi hverskonar. Tilgangur samtakanna er að efla útinám á Íslandi og styðja félagsmenn í því verki. Áhersla er lögð á að kynna gildi útináms og auka faglega færni, þekkingu, gæði og umræðu á því sviði. Æskilegt er að merkið endurspegli þessi gildi.”

Samkeppnin hefst 9.febrúar 2017 og loka frestur til að skila inn tillögum er 15.maí 2017. Stjórn samtakanna fer yfir tillögurnar og velur 3 tillögur fyrir almenna kosningu á Facebook síðu félagsins.

Sigurvegari samkeppninnar fær að launum 50.000 krónur.

Til að taka þátt skal senda tillögu að logoi á netfangið utinam@utinam.is

Leiðbeiningar og skilmálar:

Allar tillögur þurfa að vera tilbúnar til notkunar og skulu í fyrstu skilast sem .jpg eða sambærilegu til birtingar á Facebook. Loka útgáfu þarf að skila sem vektorteikningu, annars vegar sem .pdf skjali og hins vegar sem Illustrator skjal eða sambærilegt.

Merkið skal vera þess eðlis að það sé auðlesanlegt bæði stórt og smátt, og hafi greinilega skírskotun til starfs samtakanna. Það er mikill kostur ef tillögunni fylgja útgáfur af merkinu til mismunandi nota, svo sem í einum lit (t.d. svart eða hvítt), með og án texta og útgáfur sem ætlaðar eru til nota í láréttu og lóðréttu formi.

Stjórnin áskilur sér rétt til að útfæra vinningstillöguna í samvinnu við hönnuðinn. Stjórnin áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum tillögum.

Auglýsing sem .pdf skjal