Stjórn SÁÚ og félagsgjald

Stjórn Samtaka áhugafólks um útinám var kosin á aðalfundi samtakanna 18.mars 2021. Eftirfarandi eru í stjórn félagsins:

  • Jakob Frímann Þorsteinson, formaður
  • Nils Óskar Nilsson, ritari
  • Hafsteinn Grétarsson, gjaldkeri
  • Hrafnhildur Sigurðardóttir, meðstjórnandi
  • Guðmundur Finnbogason, meðstjórnandi
  • Hjalti Hrafn Hafþórsson, varamaður
  • Barbara Georgsdóttir Fialová, varamaður

Félagsgjald verður áfram 1.500 kr. (ársgjald). Greiðsluseðill verður sendur í netbanka til félagsmanna á næstu dögum. 

Þeir sem hafa tíma og áhuga til að koma að starfi samtakanna, taka þátt í eða skipuleggja viðburði, vinna að samfélagsmiðlum eða heimasíðu, eða á annan hátt ýta undir útinám í leik og starfi eru hjartanlega velkomnir að setja sig í samband við stjórn SÁÚ. 

Hér er hægt að skrá sig í Samtök áhugafólks um útinám. Tilgangur samtakanna er að efla útinám á Íslandi og styðja félagsmenn í því verki. Áhersla er lögð á að kynna gildi útináms og auka faglega færni, þekkingu, gæði og umræðu á því sviði. Félagsgjald er 1.500 kr. á ári. Hægt er að skrá sig hér.