Stjórn SNÚ boðar til aðalfundar þann 17. september klukkan 17:30 að Úlfljótsvatni. Fundurinn verður haldinn í lok ráðstefnu um útinám sem fram fer á Úlfljótsvatni sömu helgi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka afstöðu til málefna félagsins.
Dagskrá fundarins:
- Setning fundar og ávarp formanns, Jakob Fríman Þorsteinsson
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Kjörgengi fundarmanna kannað
- Lagabreytingar kynntar
- Afbrigða leitað vegna lagabreytinga
- Lagabreytingar ræddar
- Kosning um lagabreytingartillögur
- Kosning stjórnarmanna
- Kosning varaformans
- Kosning gjaldkera
- Kosning meðstjórnanda (til eins árs, vegna forfalla)
- Kosning tveggja varamanna (til eins árs)
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga (til eins árs)
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Tillaga að nefndum á vegum félagsins og kosning í þær.
- Upplýsinganefnd – heldur utan um heimasíðu félagsins og Facebook hóp félagsins
- Þrír til fimm kjörnir í nefndina til eins árs í senn
- Ráðstefnunefnd – heldur utan um námskeið, málstofur og ráðstefnur félagsins
- Þrír til fimm kjörnir í nefndina til eins árs í senn.
- Alþjóðanefnd – heldur utan um alþjóðasamskipti félagsins.
- Þrír til fimm kjörnir í nefndina til eins árs í senn.
- Upplýsinganefnd – heldur utan um heimasíðu félagsins og Facebook hóp félagsins
- Kynning á drögum að dagskrá félagsins fyrir árið 2017.
- Önnur mál.
- Afhending á léninu Útinám.is. Jakob Fríman Þorsteinsson gefur samtökunum lénið utinam.is.