SNÚ - Samtök náttúru- og útiskóla

namskeid-okt64_minni.JPGTilgangur samtakanna er að stuðla að eflingu náttúru- og útináms á Íslandi. Samtökin vilja stuðla að aukinni umræðu um útinám og útikennslu í samfélaginu, auka upplýsingamiðlun og samskipti milli útikennsluaðila, auka samstarf milli útikennsluaðila og stjórnvalda og efla erlend samskipti á sviði útináms og útikennslu.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því:

1. Að vera í forustu fyrir þróun útináms á Íslandi.

2. Að vera sameiginlegur vettvangur útikennsluaðila.

3. Að vera tengiliður milli útikennsluaðila og stjórnvalda

4. Að vera tengiliður erlendra samskipta á Íslandi á sviði útináms og útikennslu.

5. Að byggja upp vettvang fyrir skoðanaskipti um útinám og útikennslu.

6. Að sameina krafta útikennsluaðila á Íslandi og styrkja þannig markvisst samstarf þeirra.

Pósthús SNÚ