Um vefinn

Markmið vefsins er að safna ýmsum fróðleikum um útinám og útikennslu sem er gangnlegt fyrir fagfólk í skólum, á vettvangi frítímans og í ferðaþjónustu.

Vefurinn er samstarfsverkefni Áskorunar ehf. og SNÚ - Samtaka um náttúru- og útiskóla. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að aukinni umræðu um útinám og útikennslu í samfélaginu, skapa vettvang fyrir upplýsingamiðlun og samskipti milli áhugafólks um útinám, og stuðla að þekkingarmyndun á þessu sviði.

Ef þú lesandi góður hefur ábendingar sem betur mætti fara hafðu þá óhikað samband.

Umsjón með vefnum hafa Jakob Frímann Þorsteinsson og Auður Pálsdóttir.

Vefurinn útinám.is var opnaður í kjölfar námsstefnunnar Að læra úti sem haldin var á Sauðárkróki 15. maí 2008. Þar var fjallað um útinám og skólastarf frá ýmsum hliðum.

Vefurinn útinám.is / utinam.is er eign Áskorunar ehf.