|
Umhverfismál
Mikilvægt svið útináms eru umhverfismálin og við sem viljum efla útinám þurfum að vera meðvituð um stöðu mála hér á landi. Nýleg vísindaskýrsla um áhrif loftslagsbreytinga hér á landi og kynningarmyndband um hana hafa nú verið gerð aðgengileg á slóðinni www.umhverfisraduneyti.is/visindaskyrsla2008. Í skýrslunni er að finna mikinn fróðleik sem á brýnt erindi við okkur.
Skilgreiningar á útinámi Þegar rýnt er í skilgreiningar á útinámi þá byggja sumar skilgreiningar á umhverfislegu sjónarhorni. Sem dæmi má nefna:
Útinám er... nám fyrir, um og í náttúrunni. - Donaldson, G., og Donaldson 1958
Útinám er... aðferð byggð á reynslunni af að takast á við viðfangsefni í náttúrulegu umhverfi. Í útinámi eru aðalviðfangsefni námsins TENGSL; tengsl mannsins við auðlindir í manninum og náttúrunni. - Priest, 1986
Útinám er... aðferð við að upplifa og læra öllum skynfærunum. Það gerist fyrst og fremst, en þó ekki eingöngu, í snertingu við náttúrulegt umhverfi. - Priest, 1990
Útinám er... að fara út í hið náttúrulega umhverfi, læra um náttúruna og læra að virða hana. - Ketchie, n.d
Útinám er... námsaðferð sem byggir á upplifunum og reynslu, og tekur til allra skilningarvitanna. Aðferðin á sér fyrst og fremst stað, þó ekki eingöngu, í náttúrulegu umhverfi og í snertingu við það. Í útinámi er námsaðaláherslan lögð á tengslin milli mannsins og umhverfisins. - Lund, 2002
Útinám er... alþjóðleg námsaðferð byggð á upplifunum, sem brýnir fólk til þátttöku í ævintýraverkefnum til að ýta undir vellíðan einstaklinga, samfélags og umhverfis. - Neill, James, 2002
Útinám er... leið til að nálgast menntunarleg markmið með beinni reynslu af umhverfinu þar sem auðlindir náttúrunnar eru námsefnið. - Institute for Outdoor Learning (Hunt, 1989:17)
Þýtt af vefsíðunni: http://wilderdom.com/definitions/definitions.html
|