|
Áhugaverðar vefsíður um útinám
Hér að neðan eru krækjur á ýmsar fróðlegar vefsíður sem fjalla um útinám og skyld efni. Ef þið rekist á áhugavert efni endilega sendið tölvupóst á jakobf@hi.is
Kennarasjónvarpið! Það er hægt að læra og fá nýjar hugmyndir með fjölbreyttum hætti. Fyrir nokkru síðan skráði ég mig á póstlistann hjá www.teachers.tv og fæ reglulega sendan póst um það sem er framundan. Ég ákvað svo að leita að efni á vefnum hjá þeim undir leitarorðunum outdoor education og mörg áhugaverð myndbönd um útinám og útikennslu voru aðgengileg. Kíktu hér.
Tímarit um útinám
Australian Journal of Outdoor Education Í þessu ástralska tímariti um útinám má finna fjölmargar góðar fræðigreinar um útinám og skyld efni. Við Íslendingar höfum frían aðgang að tímaritum frá árinu 1999.
The Journal of Experiential Education - Tímarit um reynslunám Hér er á ferðinni frábært tímarit um reynslunám sem kemur út tvisvar á ári. Við Íslendingar höfum frían aðgang að tímaritum frá árinu 1999.
Yfirlit um ritrýnd tímarit um útinám
Ýmis fróðleikur um útinám
Upplýsingagátt um útinám - Outdoor Learning Research Sources Hér er hægt að nálgast vefi um m.a. rannsóknir, umræðuhópa, tímarit og ráðstefnur. Ansi árans góð gátt!
Kenningar um útinám - Theories of Outdoor Education Hér fjallar James Neill í stuttum máli um ýmsar kenningar sem tengdar hafa verið við útinám.
Yfirlit um rannsóknir á útinámi - A Review of Research on Outdoor Learning James Neill hefur hér tekið saman niðurstöður ýmissa ránnsókna á sviðinu að „læra úti".
Yfirlits- og samanburðarrannsókn gerð í Englandi árið 2004, sem náði til 150 rannsókna um útinám, frá árunum 1993-2003. Hægt er að nálgast niðurstöðurnar í mismunandi útfærslum: Samantekt á vef, samantekt á pdf, grein í fræðiriti um niðurstöðurnar og svo er einnig hægt að nálgast alla skýrsluna á bókasafni menntasviðs.
Útinám og ferðaþjónusta
Outdoor adventure tourism A Review of Research Approaches - Yfirlitsrannsókn á ævintýratengdri ferðaþjónstu Hér er fjallað um einkenni ævintýraferðaþjónustu, vísað í fjölmargar rannsóknir og einnig fjallað um nálganir í rannsóknum.
|